FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. SEPTEMBER 2021

Fluttar voru út vörur fyrir 55,9 milljarða króna fob í ágúst 2021 og inn fyrir 92,1 milljarð króna cif (90,7 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 36,2 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 17,5 milljarða króna í ágúst 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í ágúst 2021 var því 18,8 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 207 milljarða króna sem er 42,4 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 17,5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í ágúst 2021 jókst um 11,8 milljarða króna, eða um 26,8%, frá ágúst 2020, úr 44,1 milljarði króna í 55,9 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 9,5 milljarða króna, eða 45% samanborið við ágúst 2020, og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls. Útflutningsverðmæti sjávarafurða minnkaði um einn milljarð, eða um 5%, og munar þar mestu um lækkun á verðmæti frystra flaka og fiskimjöls. Á móti kemur aukið verðmæti í ferskum fiski og frystum.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá september 2020 til ágúst 2021, var 702,7 milljarðar króna og hækkaði um 104,5 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 17,5% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 49% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 17,8% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 41% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 12,4% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 11 milljarða, eða 42,3%, á sama tímabili og var um 5% af heildarútflutningsverðmæti síðustu tólf mánaða.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 19,3% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 92,1 milljarði króna í ágúst 2021 samanborið við 61,5 milljarða í ágúst í fyrra. Verðmæti flutningstækja jókst um 7,2 milljarða króna (114,7%), verðmæti hrá- og rekstrarvara jókst um 10,1 milljarð (59,5%) og verðmæti eldsneytis jókst um 4,5 milljarða króna (89,7%).

Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 909,7 milljarðar króna og jókst um 146,9 milljarða króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 19,3% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili var mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og neysluvörum en á móti var samdráttur í eldsneyti.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánuði var 199,7 og var gengið 3,9% veikara en á fyrra tólf mánaða tímabili þegar meðaltal gengisvísitölu var 192,2. Gengið styrktist aftur á móti um 7% í ágúst (193,8) samanborið við ágúst 2020 (208,5). Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur að ræða og niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili
Milljarðar króna á gengi hvors ársseptember 2019 - ágúst 2020september 2020 - ágúst 2021Breyting frá fyrra tímabili (%)
Útflutningur alls fob598,2 702,7 17,5
Sjávarafurðir259,2 291,3 12,4
Landbúnaðarafurðir þ.m.t. eldisfisk32,0 45,6 42,6
Iðnaðarvörur290,9 342,8 17,8
Aðrar vörur16,1 23,0 42,6
Innflutningur alls cif762,8 909,7 19,3
Matvörur og drykkjarvörur80,5 87,6 8,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.225,6 270,4 19,9
Eldsneyti og smurolíur68,1 43,4 -36,3
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)164,3 203,0 23,6
Flutningatæki103,9 141,0 35,8
Neysluvörur ót.a.119,7 150,8 26,0
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)0,6 0,3 -60,1
Vöruskiptajöfnuður-164,6-207,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.