FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 10. SEPTEMBER 2024

Fluttar voru út vörur fyrir 70,9 milljarða króna fob í ágúst 2024 og inn fyrir 104,0 milljarða cif (98,3 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 33,1 milljarð króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 44,4 milljarða króna í ágúst 2023 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í ágúst 2024 var því 11,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 364,5 milljarða króna sem er 37,4 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í ágúst 2024 var 1,3 milljörðum króna meira (2%) en í ágúst 2023, fór úr 69,6 milljörðum króna í 70,9 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 943,2 milljarðar króna og dróst saman um 22,4 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 2% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 6% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 2% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 104,0 milljörðum króna í ágúst 2024 samanborið við 114,0 milljarða í ágúst 2023 og dróst því saman um 10,0 milljarða króna eða um 9%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.307,7 milljarðar króna og minnkaði um 59,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs fyrir sig. Lítils háttar verðmætaaukning var í innflutningi á mat- og drykkjarvörum, fjárfestingavörum og neysluvörum en samdráttur var mestur í verðmæti innflutnings á flutningatækjum og eldsneyti og smurolíum þó að innflutningur á hrávörum og rekstrarvörum minnkaði einnig.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 195,2 og var gengið 0,1% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 195,1. Gengið var 5,2% veikara í ágúst 2024 (197,6) samanborið við ágúst 2023 (187,7).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir ágúst og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í upphafi næsta mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.