FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 08. SEPTEMBER 2025

Fluttar voru út vörur fyrir 67,1 milljarð króna fob í ágúst 2025 og inn fyrir 100,9 milljarða cif (95,7 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 33,8 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 35,3 milljarða króna í ágúst 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruviðskiptajöfnuðurinn í ágúst 2025 var því 1,5 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 481,8 milljarða króna sem er 122,7 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 3% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í ágúst 2025 var 3,6 milljörðum króna minni (5%) en í ágúst 2024, fór úr 70,7 milljörðum króna í 67,1 milljarð.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 967,4 milljarðar króna og jókst um 25,1 milljarð miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 3% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 54% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 5% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 1% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 11% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 100,9 milljörðum króna í ágúst 2025 samanborið við 106 milljarða í ágúst 2024 og dróst saman um 5,1 milljarð eða 5%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.449,1 milljarður króna og jókst um 147,8 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 11% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum og flutningatækjum. Mesta aukning í innflutningi var í fjárfestingarvörum sem jukust um 44%. Mikinn vöxt í fjárfestingavörum má að verulegu leyti rekja til umfangsmikils innflutnings tölvuvara hjá fyrirtækjum sem reka gagnaver í landinu.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 189,7, styrktist um 2,8% (195,2) frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 7,4% sterkara í ágúst 2025 (183,0) samanborið við ágúst 2024 (197,6).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir ágúst og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.