TALNAEFNI UTANRÍKISVERSLUN 30. SEPTEMBER 2026

Fluttar voru út vörur fyrir 72,4 milljarða króna fob í ágúst 2026 (72,4 milljarða skv. bráðabirgðatölum) og inn fyrir tæpa 135,6 milljarða króna cif (135,5 milljarða skv. bráðabirgðatölum) samkvæmt endurskoðuðum bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í ágúst voru því nánast óbreytt eftir endurskoðun bráðabirgðatalna og óhagstæð um 63,1 milljarð króna (63,1 milljarð skv. bráðabirgðatölum).

Verðmæti útflutnings var þannig nær óbreytt frá bráðabirgðatölum en verðmæti innflutnings jókst um einungis 33 milljónir króna frá bráðabirgðatölum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.