Fluttar voru út vörur fyrir 61,5 milljarð króna fob í apríl 2021 og inn fyrir 68,3 milljarða króna cif (62,6 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 6,9 milljarða króna.
Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 7,3 milljarða króna í apríl 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruviðskiptajöfnuðurinn í apríl 2021 var því 0,4 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 150,8 milljarða króna sem er 31 milljarði hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings jókst um 5,6% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í apríl 2021 jókst um 14,1 milljarð króna, eða um 29,9%, frá apríl 2020, úr 47,3 milljörðum króna í 61,5 milljarða. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 9,5 milljarða (53,5%), munar þar mestu um aukið verðmæti loðnu. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 2,6 milljarða króna eða 17,3% samanborið við apríl 2020 og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá maí 2020 til apríl 2021, var 648,7 milljarða króna og hækkaði um 34,3 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 5,6% á gengi hvors árs.. Iðnaðarvörur voru 48% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 1,5% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 43% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 9,4% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 6,2 milljarða eða 23,7% á sama tímabili.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 0,4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 68,3 milljörðum króna í apríl 2021 samanborið við 54,6 milljarða í apríl 2020. Verðmæti hrá- og rekstrarvara jókst um 24,6%, verðmæti bensíns og gasolía jókst um tæpa tvo milljarða frá því í apríl í fyrra og neysluvörur um aðra tvo milljarða. Að auki var verðmæti innfluttra skipa rúmur milljarður. Aðrir liðir tóku minni breytingum.
Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 800,0 milljarðar króna og jókst um 3,3 milljarða króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 0,4% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili er mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og neysluvörum en á móti er samdráttur í flutningatækjum og eldsneyti.
Hafa má í huga að gengisvísitala1 hækkaði um 10,1% á þessu tólf mánaða tímabili en gengið styrktist aftur á móti um 4,5% á milli apríl 2020 og 2021.
Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða og niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.
Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili | |||
Milljarðar króna á gengi hvors árs | Maí 2019 - apríl 2020 | Maí 2020 - apríl 2021 | Breyting frá fyrra tímabili (%) |
Útflutningur alls fob | 614,4 | 648,7 | 5,6 |
Sjávarafurðir | 257,5 | 281,8 | 9,4 |
Landbúnaðarafurðirþ.m.t. fiskeldi | 32,1 | 40,0 | 24,6 |
Iðnaðarvörur | 303,8 | 308,4 | 1,5 |
Aðrar vörur | 21,0 | 18,4 | -12,2 |
Innflutningur alls cif | 796,3 | 799,6 | 0,4 |
Matvörur og drykkjarvörur | 80,6 | 82,6 | 2,5 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 226,3 | 248,8 | 9,9 |
Eldsneyti og smurolíur | 92,0 | 45,4 | -50,6 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 167,8 | 186,5 | 11,1 |
Flutningatæki | 115,1 | 93,5 | -18,8 |
Neysluvörur ót.a. | 114,1 | 142,1 | 24,6 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 0,4 | 0,6 | 38,7 |
Vöruskiptajöfnuður | -181,9 | -150,8 |
1 Heimild: Seðlabanki Íslands- Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).