FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 08. MAÍ 2023

Fluttar voru út vörur fyrir 68,4 milljarða króna fob í apríl 2023 og inn fyrir 89,0 milljarða króna cif (83,9 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob/cif-verðmæti voru því óhagstæð um 20,6 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 17,9 milljarða króna í apríl 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í apríl 2022 var því 2,7 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 334,6 milljarða króna sem er 110,4 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 20,4% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í apríl 2023 var 5,2 milljörðum króna minna (7,1%) en í apríl 2022, fór úr 73,6 milljörðum króna í 68,4 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á 12 mánaða tímabili var 1.009,0 milljarður króna og jókst um 170,9 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 20,4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 56% alls vöruútflutnings og jókst verðmæti þeirra um 23,5% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 35% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra jókst um 15,9% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 26,5% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 89,0 milljörðum króna í apríl 2023 samanborið við 91,6 milljarða í apríl 2022 og minnkaði því um 2,5 milljarða króna eða um 2,8%. Verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 24,6 milljörðum króna og minnkaði um 6,1 milljarð (19,8%). Verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 21,6 milljörðum króna sem er aukning um 0,8 milljarða króna (3,8%) ogverðmæti flutningatækja nam 15,3 milljörðum og jókst um 2,8 milljarða króna (22,4%) samanborið við apríl 2022.

Verðmæti vöruinnflutnings á 12 mánaða tímabili var 1.343,7 milljarðar króna og jókst um 281,3 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 26,5% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin var mest í eldsneyti, hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingavörum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 193,0 og var gengið 0,1% sterkara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 193,2. Gengið veiktist um 3,8% í apríl (195,1) samanborið við apríl 2022 (187,9).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir apríl og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.