FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 08. MAÍ 2025

Fluttar voru út vörur fyrir 82,3 milljarða króna fob í apríl 2025 og inn fyrir 135,7 milljarða cif (129,4 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 53,4 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 46,8 milljarða króna í apríl 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruviðskiptajöfnuðurinn í apríl 2025 var því 6,7 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 437,2 milljarða króna sem er 39,7 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 8% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í apríl 2025 var 9,4 milljörðum króna meiri (13%) en í apríl 2024, fór úr 72,9 milljörðum króna í 82,3 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 997,1 milljarður króna og jókst um 78,0 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 8% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 55% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 12% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 36% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 3% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 9% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 135,7 milljörðum króna í apríl 2025 samanborið við 119,6 milljarða í apríl 2024 og jókst því um 16,1 milljarð króna eða um 13%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.434,3 milljarðar króna og jókst um 117,6 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 9% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum og á flutningatækjum en á móti kom aukning á innflutningi á flestum öðrum liðum, mest þó á fjárfestingarvörum og hrá- og rekstrarvörum. Mikinn vöxt í fjárfestingavörum má að verulegu leyti rekja til umfangsmikils innflutnings tölvuvara hjá fyrirtækjum sem reka gagnaver í landinu.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 193,5, styrktist um 0,3% (194,1) frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 4,8% sterkara í apríl 2025 (187,3) samanborið við apríl 2024 (196,7).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir apríl og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.