FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 08. MAÍ 2026

Fluttar voru út vörur fyrir 73,2 milljarða króna fob í apríl 2026 og inn fyrir 138,1 milljarð cif (131,7 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 64,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 54,1 milljarð króna í apríl 2025 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í apríl 2026 var því 10,8 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 429,6 milljarða króna sem er 35,5 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti vöruútflutnings dróst saman um 6% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í apríl 2026 var 9 milljörðum króna minna (11%) en í apríl 2025, fór úr 82,2 milljörðum króna í 73,2 milljarða, aðallega vegna samdráttar í útflutningi á iðnaðarvörum.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 915,3 milljarðar króna og dróst saman um 54,1 milljarð miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 6% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 49% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 14% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 41% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 5% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 6% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 138,1 milljarði króna í apríl 2026 samanborið við 136,2 milljarða í apríl 2025 og jókst því um 1,9 milljarða króna eða um 1%. Aukning var aðallega vegna aukins innflutnings á eldsneyti og smurolíum og flutningatækjum en á móti kom samdráttur í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og mat og drykkjarvörum.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.345 milljarðar króna og dróst saman um 89,7 milljarða, miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 6% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var mestur í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum en einnig var samdráttur í fjárfestingavörum og eldsneyti og smurolíum en mest var aukning í innflutningi á neysluvörum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 185,4 og var gengið 4,2% sterkara frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 1,2% sterkara í apríl 2026 (185,2) samanborið við apríl 2025 (187,3).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir apríl og gætu niðurstöður breyst.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.