FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 17. MAÍ 2023

Fluttar voru út vörur fyrir 1.001,6 milljarða króna fob árið 2022 og inn fyrir 1.304,6 milljarða króna cif (1219,4 milljarða króna fob). Vöruviðskiptin 2022, reiknuð á fob/cif verðmæti, voru því óhagstæð um 303,0 milljarða króna. Vöruskiptahallinn 20221 var fyrir vikið 88,3 milljörðum króna meiri en árið 2021 þegar vöruviðskiptin voru óhagstæð um 214,7 milljarða á gengi hvors árs.

Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 43,9% á milli ára
Verðmæti vöruútflutnings árið 2022 var 239,2 milljörðum meira en árið 2021 sem jafngildir aukningu um 31,4% á milli ára. Iðnaðarvörur voru 57,0% alls útflutningsverðmætis á síðasta ári en verðmæti þeirra jókst um 43,9% samanborið við árið 2021. Útflutningur á áli og álafurðum átti stærsta hlutdeild í útflutningi á iðnaðarvörum árið 2022 eða 40,2% af heildarútflutningsverðmæti. Verðmæti útfluttra sjávarafurða var 34,9% af heildarútflutningsverðmæti og jókst um 17,9% frá fyrra ári. Mesta hlutdeild í útflutningsverðmæti sjávarafurða árið 2022 átti ferskur fiskur (8,7%) og fryst flök (8,6%). Stærstu viðskiptalönd í vöruútflutningi árið 2022 voru Holland, Bretland og Bandaríkin. Alls fóru 71,4% alls útflutnings til ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).

Aukinn innflutningur í öllum flokkum
Árið 2022 var verðmæti vöruinnflutnings 327,5 milljörðum króna meira en árið 2021 eða 33,5% á gengi hvors árs. Mestu munaði um innflutning á eldsneyti og hrá- og rekstrarvörum. Mesta hlutdeild í innflutningsverðmæti áttu hrá- og rekstrarvörur (27,8%) og fjárfestingarvörur (22,6%). Stærstu viðskiptalönd í vöruinnflutningi árið 2022 voru, Noregur, Kína og Þýskaland. Verðmæti innflutnings frá ríkjum innan EES nam 57,4% alls innflutnings árið 2022.

1 Gögn fyrir árið 2022 voru endurskoðuð í maí 2023.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.