Verðmæti vöruútflutnings (fob) nam 58,6 milljörðum króna í desember 2020 samkvæmt bráðabirgðatölum og verðmæti vöruinnflutnings (fob) 57,6 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 1,0 milljarð króna. Í desember 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 11,9 milljarða króna á gengi hvors árs.
Verðmæti vöruútflutnings var 15,7 milljörðum króna meiri í desember 2020 en í desember 2019 eða sem nemur 36,5% á gengi hvors árs. Mestu munar um meiri verðmæti í útflutningi iðnaðarvara og verðmæti sjávarafurða.
Verðmæti vöruinnflutnings í desember 2020 var 2,8 milljörðum króna meira en í desember 2019 eða 5,2% á gengi hvors árs. Aukið verðmæti var í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og neysluvörum en á móti var minna verðmæti í innflutningi á eldsneyti og flutningatækjum.
Við birtingu bráðabirgðatalna í desember gefst tækifæri til að skoða árið í heild. Á árinu 2020 voru fluttar út vörur fyrir 619,9 milljarða króna sem er 3% samdráttur frá fyrra ári. Verðmæti innflutnings var 714,8 milljarðar króna fob sem er 6% minnkun frá fyrra ári. Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því 95,0 milljarði króna árið 2020, reiknað á fob verðmæti. Á árinu 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 118,1 milljarð króna á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruviðskiptajöfnuðurinn á árinu 2020 gæti því orðið 23,2 milljörðum króna hagstæðari en á árinu 2019 ef þessar tölur ganga eftir.
Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.
Verðmæti út- og innflutnings janúar til desember 2019 og 2020 | |||
Milljarðar króna á gengi hvors árs, bráðabirgðatölur | 2019 | 2020 | Breyting frá fyrra ári (%) |
Útflutningur alls | 641,9 | 619,9 | -3,4% |
Sjávarafurðir | 260,4 | 269,9 | 3,7% |
Landbúnaðarafurðirþ.m.t. fiskeldi | 30,8 | 35,4 | 14,9% |
Iðnaðarvörur | 307,5 | 299,0 | -2,8% |
Aðrar vörur | 43,1 | 15,6 | -63,9% |
Innflutningur alls | 760,0 | 714,8 | -5,9% |
Matvörur og drykkjarvörur | 72,4 | 74,4 | 2,8% |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 218,8 | 214,1 | -2,2% |
Eldsneyti og smurolíur | 93,7 | 47,8 | -49,0% |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 167,6 | 161,3 | -3,7% |
Flutningatæki | 102,7 | 94,3 | -8,2% |
Neysluvörur ót.a. | 104,3 | 122,4 | 17,3% |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 0,4 | 0,6 | 25,6% |
Vöruskiptajöfnuður | -118,1 | -95,0 |