Fluttar voru út vörur fyrir 76,6 milljarða króna fob í desember 2021 og inn fyrir 95,1 milljarð króna cif (87,6 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 18,4 milljarða króna.
Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 5,7 milljarða króna í desember 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í desember 2021 var því 12,8 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður árið 2021 var neikvæður um 237,2 milljarða króna sem er 86,1 milljarði króna óhagstæðari jöfnuður en á árinu 2020.
Verðmæti útflutnings jókst um 22,4% á árinu 2021
Verðmæti vöruútflutnings í desember 2021 jókst um 17 milljarða króna, eða um 28,5%, frá desember 2020, úr 59,6 milljörðum króna í 76,6 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 17,2 milljarða króna, eða 59,1% samanborið við desember 2020, og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls.
Verðmæti vöruútflutnings á árinu 2021 var 759,1 milljarður króna og hækkaði um 138,9 milljarða króna miðað við árið 2020 eða um 22,4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 52% alls vöruútflutnings á árinu 2021 og var verðmæti þeirra 32,9% meira en á árinu 2020. Sjávarafurðir voru 39% alls vöruútflutnings á síðasta ári en verðmæti þeirra jókst um 8,5% á milli áranna 2020 og 2021. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 6,8 milljarða á milli ára og var um 5% af heildarútflutningsverðmæti ársins 2020.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 29,2% á árinu 2021
Verðmæti vöruinnflutnings nam 95,1 milljarði króna í desember 2021 samanborið við 65,3 milljarða í desember 2020 og jókst um 29,8 milljarða króna á milli ára. Verðmæti innfluttra fjárfestingavara jókst um 4,9 milljarða króna (33,2%), verðmæti eldsneytis um 6,7 milljarða króna (303,3%) og verðmæti flutningstækja um 7,2 milljarða (103,1%).
Verðmæti vöruinnflutnings á síðasta ári var 996,4 milljarðar króna og jókst um 224,9 milljarða króna miðað við árið 2020 eða 29,2% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á árinu 2021 var mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og flutningatækjum.
Meðaltal gengisvísitölu á árinu 2021 var 196,1 og var gengið 2,4% sterkara en á árinu 2020 þegar meðaltal gengisvísitölu var 201. Gengið styrktist um 2,3% í desember (194,5) samanborið við desember 2020 (199,1).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir desember og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.