FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. MARS 2022

Fluttar voru út vörur fyrir 66,4 milljarða króna fob í febrúar 2022 og inn fyrir 81,5 milljarða króna cif (75,8 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í febrúar, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 15,1 milljarð króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 12,5 milljarða króna í febrúar 2021 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í febrúar 2022 var því 2,6 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 239,5 milljarða króna sem er 88,7 milljarða króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 27,1% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í febrúar 2022 jókst um 13.8 milljarða króna, eða um 26,3%, frá febrúar 2021, úr 52,6 milljörðum króna í 66,4 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 12,3 milljarða króna, eða 47,5%, samanborið við febrúar 2021 og munar þar mestu um aukið útflutningsverðmæti áls.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 799,5 milljarðar króna og jókst um 170,5 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 27,1% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili og var verðmæti þeirra 39,6% meira en á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 11,5% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 8,9 milljarða á milli tólf mánaða tímabila, eða um 29,9%, og mælist 5% af heildarútflutningsverðmæti á tólf mánaða tímabili.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 33,2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 81,5 milljörðum króna í febrúar 2022 samanborið við 65,1 milljarð í febrúar 2021 og jókst um 16,4 milljarða króna eða 25,2%. Verðmæti eldsneytis jókst um 4,0 milljarða króna (103,6%), verðmæti hrá- og rekstrarvöru jókst um 5,3 milljarða (28,0%) og verðmæti flutningstækja um 740,1 milljón (62,3%).

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.039,0 milljarðar króna og jókst um 259,2 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabili ári fyrr eða 33,2% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á tímabilinu var mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og flutningatækjum.

Meðaltal gengisvísitölu1 á tólf mánaða tímabili var 194,4 og var gengið 4,7% sterkara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 204,1. Gengið styrktist um 6,5% í febrúar (188,2) samanborið við febrúar 2021 (201,2).

Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur fyrir febrúar að ræða og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

1 Heimild: Seðlabanki Íslands - Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281157 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.