FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. MARS 2024

Fluttar voru út vörur fyrir 79,7 milljarða króna fob í febrúar 2024 og inn fyrir 100,4 milljarða cif (95,2 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í febrúar, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 20,7 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 23,7 milljarða króna í febrúar 2023 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í febrúar 2024 var því 3,0 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 372,2 milljarðar króna sem er 62,1 milljarði króna óhagstæðara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 8% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í febrúar 2024 var 3,7 milljörðum króna meiri (5%) en í febrúar 2023, fór úr 75,9 milljörðum króna í 79,7 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 941,1 milljarður króna og dróst saman um 84,4 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 8% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 14% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 2% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 100,4 milljörðum króna í febrúar 2024 samanborið við 99,6 milljarða í febrúar 2023 og jókst því um 0,8 milljarð króna eða um 1%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.313,3 milljarðar króna og minnkaði um 22,3 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri vöruflokkum er verðmætaaukningin mest í fjárfestingavörum, flutningatækjum og mat- og drykkjarvörum. Á móti kemur samdráttur í verðmæti innflutnings á hrávörum og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,1 og var gengið 1,1% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 192,0 Gengið var 3,1% sterkara í febrúar 2024 (195,2) samanborið við febrúar 2023 (201,3).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir febrúar og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.