FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. MARS 2025

Fluttar voru út vörur fyrir 78,5 milljarða króna fob í febrúar 2025 og inn fyrir 136,4 milljarða cif (130,9 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í febrúar, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 57,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 20,6 milljarða króna í febrúar 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruviðskiptajöfnuðurinn í febrúar 2025 var því 37,4 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 421,7 milljarða króna sem er 50,4 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 3% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í febrúar 2025 var 0,7 milljörðum króna minna (1%) en í febrúar 2024, fór úr 79,2 milljörðum króna í 78,5 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 972,3 milljarðar króna og jókst um 31,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 3% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 55% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 7% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 35% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 4% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 6% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 136,4 milljörðum króna í febrúar 2025 samanborið við 99,7 milljarða í febrúar 2024 og jókst því um 36,7 milljarða króna eða um 37%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.394,0 milljarðar króna og jókst um 82,0 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 6% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á flutningatækjum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom aukning á innflutningi á flestum öðrum liðum, mest þó á fjárfestingarvörum og hrá- og rekstrarvörum. Mikinn vöxt í fjárfestingavörum má að verulegu leyti rekja til umfangsmikils innflutnings tölvuvara fyrirtækja sem reka gagnaver á landinu.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,7, veiktist um 0,3% (194,1) frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 1,1% sterkara í febrúar 2025 (193,1) samanborið við febrúar 2024 (195,2).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir febrúar og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.