FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. MARS 2026

Fluttar voru út vörur fyrir 78 milljarða króna fob í febrúar 2026 og inn fyrir 88 milljarða cif (82,9 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í febrúar, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 9,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 59,5 milljarða króna í febrúar 2025 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í febrúar 2026 var því 49,5 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 425,9 milljarða króna sem er 22,2 milljarða króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í febrúar 2026 var 1,7 milljarði króna meira (2%) en í febrúar 2025, fór úr 76,3 milljörðum króna í 78 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 905,3 milljarðar króna og dróst saman um 39,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 51% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 9% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 40% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 5% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 88 milljörðum króna í febrúar 2026 samanborið við 135,7 milljarða í febrúar 2025 og dróst því saman um 47,8 milljarða króna eða um 35%. Lunginn af þessum samdrætti, eða 42 milljarðar, kemur til vegna minni innflutnings á fjárfestingavöru.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.331,3 milljarðar króna og dróst saman um 61,9 milljarða, miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á fjárfestingavöru, eldsneyti og smurolíum og hrávörum og rekstrarvörum en þar sem kom fram aukning á innflutningi var aukningin hverfandi í samhengi við samdráttarliðina, að neysluvörum undanskildum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 185,9 og var gengið 4,5% sterkara frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 3,8% sterkara í febrúar 2026 (185,7) samanborið við febrúar 2025 (193,1).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir febrúar og gætu niðurstöður breyst.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.