FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. FEBRÚAR 2022

Fluttar voru út vörur fyrir 76,4 milljarða króna fob í janúar 2022 og inn fyrir 75,3 milljarða króna cif (70,1 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í janúar, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því hagstæð um 1,1 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 5,1 milljarð króna í janúar 2021 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í janúar 2022 var því 6,2 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 230,6 milljarða króna sem er 83,1 milljarði króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti vöruútflutnings jókst um 26,2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í janúar 2022 jókst um 27.2 milljarða króna, eða um 55,3%, frá janúar 2021, úr 49,2 milljörðum króna í 76,4 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 16,9 milljarða króna, eða 63% samanborið við janúar 2021, og munar þar mestu um aukið útflutningsverðmæti áls.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 785,8 milljarðar króna og jókst um 163,3 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 26,2% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili og var verðmæti þeirra 37,7% meira en á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 11,6% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 9,0 milljarða á milli tólf mánaða tímabila og mælist 5% af heildarútflutningsverðmæti á tólf mánaða tímabili.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 32% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 75,3 milljörðum króna í janúar 2022 samanborið við 54,3 milljarða í janúar 2021 og jókst um 21,1 milljarð króna. Verðmæti eldsneytis jókst um 5,2 milljarða króna (130,2%), verðmæti hrá- og rekstrarvöru jókst um 7,4 milljarða (50,9%) og verðmæti flutningstækja um 3,2 milljarð (62,3%).

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.016,4 milljarðar króna og jókst um 246,3 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabili ári fyrr eða 32% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á tímabilinu var mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og flutningatækjum.

Meðaltal gengisvísitölu1 á tólf mánaða tímabili var 195,5 og var gengið 3,5% sterkara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 202,6. Gengið styrktist um 4% í janúar (193,7) samanborið við janúar 2021 (201,8).

Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur fyrir janúar að ræða og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

1 Heimild: Seðlabanki Íslands - Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.