FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. FEBRÚAR 2024

Vinsamlegast athugið að þessi fréttatilkynning var leiðrétt 7. febrúar 2024 kl. 11:00 frá upprunalegri útgáfu vegna rangrar skráningar í útflutningsskýrslum.

Fluttar voru út vörur fyrir 88,2 milljarða króna fob í janúar 2024 og inn fyrir 99,0 milljarða cif (93,8 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í janúar, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 10,8 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 14,4 milljarða króna í janúar 2023 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í janúar 2024 var því 3,5 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 389,1 milljarður króna sem er 79,0 milljörðum króna óhagstæðara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 8% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í janúar 2024 var 9,1 milljarði króna meiri (12%) en í janúar 2023, fór úr 79,1 milljarði króna í 88,2 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 923,4 milljarðar króna og dróst saman um 83,9 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 8% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 54% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 13% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 3% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings nánast óbreytt á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 99,0 milljörðum króna í janúar 2024 samanborið við 93,5 milljarða í janúar 2023 og jókst því um 5,6 milljarða króna eða um 6%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.312,5 milljarðar króna og minnkaði um 4,9 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri vöruflokkum er verðmætaaukningin mest í fjárfestingavörum, flutningatækjum og mat- og drykkjarvörum. Á móti kemur samdráttur í verðmæti innflutnings á hrávörum og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,6 og var gengið 1,9% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 190,9 Gengið var 3,5% sterkara í janúar 2023 (195,7) samanborið við janúar 2023 (202,8).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir janúar og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.