FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. FEBRÚAR 2025

Fluttar voru út vörur fyrir 93,9 milljarða króna fob í janúar 2025 og inn fyrir 101,5 milljarða cif (97,0 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í janúar, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 7,6 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 19,7 milljarða króna í janúar 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruviðskiptajöfnuðurinn í janúar 2025 var því 12,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 386,3 milljarða króna sem er 12,0 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í janúar 2025 var 14,7 milljörðum króna meira (19%) en í janúar 2024, fór úr 79,2 milljörðum króna í 93,9 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 973,1 milljarður króna og jókst um 35,5 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 54% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 7% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 36% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 3% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst einnig um 4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 101,5 milljörðum króna í janúar 2025 samanborið við 98,9 milljarða í janúar 2024 og jókst því um 2,5 milljarða króna eða um 3%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.359,4 milljarðar króna og jókst um 47,5 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 4% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á flutningatækjum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom aukning á innflutningi á flestum öðrum liðum, mest þó á fjárfestingarvörum og hrá- og rekstrarvörum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,9, veiktist um 0,1% (194,6) frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 2,1% sterkara í janúar 2025 (191,5) samanborið við janúar 2024 (195,7).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir janúar og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í upphafi næsta mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.