Fluttar voru út vörur fyrir 68,6 milljarða króna fob í júlí 2021 og inn fyrir 84,7 milljarða króna cif (78,4 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 16,1 milljarð króna.
Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 18,8 milljarða króna í júlí 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í júlí 2021 var því 2,7 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 170,8 milljarða króna sem er 7,8 milljarða króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings jókst um 15% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júlí 2021 jókst um 21,9 milljarða króna, eða um 46,8%, frá júlí 2020, úr 46,8 milljörðum króna í 68,7 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 17,6 milljarða króna, eða 70,7% samanborið við júlí 2020, og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls og kísiljárns. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 2,1 milljarð, eða um 11%, og munar þar mestu um aukið verðmæti uppsjávarfisks.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá ágúst 2020 til júlí 2021, var 690,4 milljarðar króna og hækkaði um 90,1 milljarð króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 15% á gengi hvors árs.. Iðnaðarvörur voru 48% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 13,5% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 42% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 14,2% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 9,7 milljarða, eða 36,8%, á sama tímabili og var um 5% af heildarútflutningsverðmæti síðustu tólf mánaða.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 12,8% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 84,7 milljörðum króna í júlí 2021 samanborið við 65,6 milljarða í júlí í fyrra. Verðmæti flutningstækja (þar með talið skipa og flugvéla) jókst um 6,9 milljarða króna (77,2 %), verðmæti hrá- og rekstrarvara jókst um 3,7 milljarða (18,8%) og verðmæti eldsneytis jókst um 3,3 milljarða króna (99%). Aðrir liðir tóku minni breytingum.
Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 861,2 milljarðar króna og jókst um 97,9 milljarða króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 12,8% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili er mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og neysluvörum en á móti er samdráttur í eldsneyti.
Meðaltal gengisvísitölu1 síðustu tólf mánuði var 200,1 og var gengið 5,8% veikara en á fyrra tólf mánaða tímabili þegar meðaltal gengisvísitölu var 189,9. Gengið styrktist aftur á móti um 6,7% í júlí (191,8) samanborið við júlí 2020 (205,5). Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur að ræða og niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.
Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili | |||
Milljarðar króna á gengi hvors árs | ágúst 2019 - júlí 2020 | ágúst 2020 - júlí 2021 | Breyting frá fyrra tímabili (%) |
Útflutningur alls fob | 600,3 | 690,4 | 15,0 |
Sjávarafurðir | 256,0 | 292,4 | 14,2 |
Landbúnaðarafurðirþ.m.t. fiskeldi | 32,1 | 44,3 | 37,8 |
Iðnaðarvörur | 294,2 | 333,8 | 13,5 |
Aðrar vörur | 18,0 | 20,0 | 11,2 |
Innflutningur alls cif | 763,3 | 861,2 | 12,8 |
Matvörur og drykkjarvörur | 78,5 | 86,7 | 10,5 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 224,8 | 260,3 | 15,8 |
Eldsneyti og smurolíur | 74,0 | 45,6 | -38,4 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 163,6 | 197,2 | 20,5 |
Flutningatæki | 104,8 | 116,6 | 11,2 |
Neysluvörur ót.a. | 117,0 | 148,6 | 27,1 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 0,6 | 0,3 | -57,0 |
Vöruskiptajöfnuður | -163,0 | -170,8 |
1 Heimild: Seðlabanki Íslands- Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).