TALNAEFNI UTANRÍKISVERSLUN 31. ÁGÚST 2026

Fluttar voru út vörur fyrir 86,5 milljarða króna fob í júlí 2026 (86,5 milljarða skv. bráðabirgðatölum) og inn fyrir 125,9 milljarða króna cif (127,1 milljarð skv. bráðabirgðatölum) eftir endurskoðun á bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júlí voru því óhagstæð um 39,4 milljarða króna (40,6 milljarða skv. bráðabirgðatölum).

Verðmæti útflutnings var nær óbreytt frá bráðabirgðatölum en verðmæti innflutnings lækkaði um 1,2 milljarða króna frá bráðabirgðatölum. Mestu munaði um endurskoðun á innflutningi eldsneytis og fjárfestingarvara. Verðmæti innflutnings flugvéla- og þotueldsneytis lækkaði um 0,5 milljarða króna, fjárfestingarvara um tæpa 0,3 milljarða króna og bensíns og gasolíu um 0,2 milljarða króna.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.