FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. JÚLÍ 2022

Fluttar voru út vörur fyrir 86,5 milljarða króna fob í júní 2022 og inn fyrir 105,6 milljarða króna cif (98,4 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 19,1 milljarð króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 47,4 milljarða króna í júní 2021 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í júní 2022 var því 28,3 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 239,0 milljarða króna sem er 57,0 milljarða króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 32,3% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júní 2022 jókst um 27,5 milljarða króna, eða um 46,8%, frá júní 2021, úr 58,9 milljörðum króna í 86,5 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 24,0 milljarða króna eða 91,8% samanborið við júní 2021.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili frá júlí 2021 til júní 2022 var 896,5 milljarðar króna og jókst um 218,7 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 32,3% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 57% alls vöruútflutnings síðustu 12 mánuði og jókst verðmæti þeirra um 60,4% frá fyrra 12 mánaða tímabili. Sjávarafurðir voru 35% alls vöruútflutnings síðustu 12 mánuði en verðmæti þeirra jókst um 5,7% í samanburði við fyrra 12 mánaða tímabil. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 5,5 milljarða á milli 12 mánaða tímabila, eða um 15,8%, og er nú 4% af heildarútflutningsverðmæti á síðustu 12 mánuðum.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 32,1% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 105,6 milljörðum króna í júní 2022 samanborið við 106,4 milljarða í júní 2021 og dróst því saman um 780 milljónir króna eða um 0,7%. Verðmæti innflutts eldsneytis nam 12,1 milljörðum og jókst um 6,2 milljarða króna (103,7%), verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 28,3 milljörðum króna og jókst um 2,2 milljarða (8,5%) og verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) var 22,3 milljarðar króna sem er aukning um 3,9 milljarða króna (20,8%) samanborið við júní 2021.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili frá júlí 2021 til júní 2022 var 1.135,5 milljarðar króna og jókst um 275,7 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 32,1% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á tímabilinu var mest í flutningatækjum, hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti.

Meðaltal gengisvísitölu1 á tólf mánaða tímabili var 191,9 og var gengið 5,0% sterkara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 202,0. Gengið styrktist um 3,3% í júní (184,8) samanborið við júní 2021 (191,1).

Meðferð leigusamninga er tengjast utanríkisverslun eru til endurskoðunar og getur sú endurskoðun haft áhrif á bæði vöruskipta- og þjónustujöfnuð.

Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur fyrir júní að ræða og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

1Heimild: Seðlabanki Íslands - Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.