FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 08. JÚLÍ 2024

Fluttar voru út vörur fyrir 71,3 milljarða króna fob í júní 2024 og inn fyrir 110,5 milljarða cif (104,8 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 39,2 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 46,9 milljarða króna í júní 2023 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í júní 2024 var því 7,7 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 379,4 milljarða króna sem er 18,2 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 8% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júní 2024 var 5,9 milljörðum króna minna (8%) en í júní 2023, fór úr 77,2 milljörðum króna í 71,3 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 920,4 milljarðar króna og dróst saman um 83,6 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 8% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 13% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 5% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 110,5 milljörðum króna í júní 2024 samanborið við 124,1 milljarð í júní 2023 og minnkaði því um 7,7 milljarða króna eða um 11%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.299,8 milljarðar króna og minnkaði um 65,4 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri vöruflokkum er verðmætaaukning í innflutningi í mat- og drykkjarvörum. Á móti kemur samdráttur í verðmæti innflutnings á hrávörum og rekstrarvörum, flutningatækjum og eldsneyti og smurolíum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,1 og var gengið 0,4% sterkara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 194,8. Gengið var 0,2% veikara í júní 2024 (195,7) samanborið við júní 2023 (195,2).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir júní og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í upphafi næsta mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.