FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 08. ÁGÚST 2024

Fluttar voru út vörur fyrir 82,1 milljarð króna fob í júlí 2024 og inn fyrir 116,0 milljarða cif (109,2 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 33,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 44,6 milljarða króna í júlí 2023 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í júlí 2024 var því 10,7 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 377,5 milljarða króna sem er 2,6 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í júlí 2024 var 17,1 milljarði króna meiri (26%) en í júlí 2023, fór úr 64,9 milljörðum króna í 82,1 milljarð.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 938,7 milljarðar króna og dróst saman um 54,1 milljarð miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 5% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 9% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 3% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 116,0 milljörðum króna í júlí 2024 samanborið við 109,5 milljarða í júlí 2023 og jókst því um 6,5 milljarða króna eða um 6%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.316,2 milljarðar króna og minnkaði um 51,5 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs fyrir sig. Verðmætaaukning er í innflutningi á mat- og drykkjarvörum og neysluvörum en samdráttur í verðmæti innflutnings á hrávörum og rekstrarvörum, flutningatækjum og eldsneyti og smurolíum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,3 og var gengið 0,5% sterkara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 195,2. Gengið var 1,8% veikara í júlí 2024 (194,9) samanborið við júlí 2023 (191,5).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir júlí og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðarins.

Samhliða bráðabirgðatölum fyrir júlí eru birtar lokatölur fyrir júní. Frávik frá bráðabirgðatölum í innflutningi má að mestu rekja til innflutnings á skipum. Töflur hafa verið uppfærðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.