FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. JÚNÍ 2021

Vinsamlegast athugið að þessi fréttatilkynning var leiðrétt 29. júní 2021 frá upprunalegri útgáfu. Heildartala fyrir vöruinnflutning og vöruviðskiptajöfnuð síðustu tólf mánaði var leiðrétt.

Fluttar voru út vörur fyrir 61,2 milljarða króna fob í maí 2021 og inn fyrir 76,8 milljarða króna cif (71,3 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 15,5 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 4,2 milljarða króna í maí 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í maí 2021 var því 11,3 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 165,7 milljarða króna sem er 13,4 milljarða króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 8,7% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í maí 2021 jókst um 8 milljarða króna, eða um 15%, frá maí 2020, úr 53,2 milljörðum króna í 61,2 milljarða. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 4,3 milljarða eða um 18%, munar þar mestu um aukið verðmæti loðnuhrogna. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 2,1 milljarð króna eða 8,3% samanborið við maí 2020 og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls og útflutning á lækingatækjum.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júní 2020 til maí 2021, var 656,7 milljarða króna og hækkaði um 52,6 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 8,7% á gengi hvors árs.. Iðnaðarvörur voru 47% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 4% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 44% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 13% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 7,7 milljarða, eða 30,2%, á sama tímabili eða um 5% af heildarútflutningi.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 76,8 milljörðum króna í maí 2021 samanborið við 57,4 milljarða í maí 2020. Verðmæti hrá- og rekstrarvara jókst um 3,7 milljarða króna eða um 20%, verðmæti matvöru og drykkjarvöru jókst um tæpa 2,8 milljarða frá því í maí í fyrra eða um 50,8%, neysluvörur um aðra 3,6 milljarða eða um 41,1% og flutningstæki um 6,1 milljarð eða um 85,7%. Aðrir liðir tóku minni breytingum.

Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 822,4 milljarðar króna og jókst um 39,1 milljarð króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 5% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili er mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og neysluvörum en á móti er samdráttur í flutningatækjum og eldsneyti.

Hafa má í huga að gengisvísitala1 hækkaði um 8,4% á þessu tólf mánaða tímabili en gengið styrktist aftur á móti um 5,5% á milli maí 2020 og 2021.

Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða og niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili
Milljarðar króna á gengi hvors ársJúní 2019 - maí 2020Júní 2020 - maí 2021Breyting frá fyrra tímabili (%)
Útflutningur alls fob604,1 656,7 8,7
Sjávarafurðir253,2 286,1 13,0
Landbúnaðarafurðirþ.m.t. fiskeldi 31,5 41,3 31,1
Iðnaðarvörur298,6 310,6 4,0
Aðrar vörur20,7 18,6 -10,2
Innflutningur alls cif783,3 822,4 5,0
Matvörur og drykkjarvörur79,3 85,4 7,7
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.228,2 252,2 10,5
Eldsneyti og smurolíur86,1 45,1 -47,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)165,0 189,8 15,0
Flutningatæki110,4 103,9 -6,0
Neysluvörur ót.a.113,8 145,5 27,9
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 0,4 0,5 27,0
Vöruskiptajöfnuður179,2-165,7

1 Heimild: Seðlabanki Íslands- Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.