FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. JÚNÍ 2023

Fluttar voru út vörur fyrir 82,8 milljarða króna fob í maí 2023 og inn fyrir 116,8 milljarða króna cif (110,2 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 33,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 26,8 milljarða króna í maí 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í maí 2022 var því 7,1 milljarði óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 342,5 milljarða króna sem er 106,1 milljarði króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 15,1% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í maí 2023 var 9,8 milljörðum króna minna (10,6%) en í maí 2022, fór úr 92,6 milljörðum króna í 82,8 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á 12 mánaða tímabili var 999,1 milljarður króna og jókst um 130,8 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 15,1% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 56% alls vöruútflutnings og jókst verðmæti þeirra um 16,1% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 36% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra jókst um 13,3% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 21,4% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 116,8 milljörðum króna í maí 2023 samanborið við 119,4 milljarða í maí 2022 og minnkaði því um 2,7 milljarða króna eða um 2,3%. Verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 33,9 milljörðum króna og minnkaði um 2,2 milljarða (6,2%). Verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 27,6 milljörðum króna sem er aukning um 5,2 milljarða króna (23,2%) og verðmæti flutningatækja nam 21,5 milljörðum og jókst um 4,9 milljarða króna (29,7%) samanborið við maí 2022.

Verðmæti vöruinnflutnings á 12 mánaða tímabili var 1.341,6 milljarðar króna og jókst um 236,8 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 21,4% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin var mest í eldsneyti, hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingavörum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,0 og var gengið 0,8% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 192,5. Gengið veiktist um 6,1% í maí (196,6) samanborið við maí 2022 (185,3).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir maí og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.