FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. JÚNÍ 2024

Fluttar voru út vörur fyrir 88,9 milljarða króna fob í maí 2024 og inn fyrir 109,7 milljarða cif (103,4 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 20,8 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 35,3 milljarða króna í maí 2023 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í maí 2024 var því 14,5 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 386,9 milljarða króna sem er 53,7 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 9% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í maí 2024 var 6,1 milljarði króna meiri (7%) en í maí 2023, fór úr 82,8 milljörðum króna í 88,9 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 925,8 milljarðar króna og dróst saman um 86,5 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 9% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 13% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 5% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 109,7 milljörðum króna í maí 2024 samanborið við 118,1 milljarð í maí 2023 og minnkaði því um 8,4 milljarða króna eða um 7%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.312,7 milljarðar króna og minnkaði um 32,8 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri vöruflokkum er verðmætaaukning í innflutningi í fjárfestingavörum, mat- og drykkjarvörum og öðrum neysluvörun. Á móti kemur samdráttur í verðmæti innflutnings á hrávörum og rekstrarvörum, flutningatækjum og eldsneyti og smurolíum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,0 og var gengið það sama fyrir tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 0,4% sterkara í maí 2024 (195,8) samanborið við maí 2023 (196,6).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir maí og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.