FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. APRÍL 2022

Fluttar voru út vörur fyrir 98,4 milljarða króna fob í mars 2022 og inn fyrir 109,9 milljarða króna cif (102,6 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 11,4 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 19,4 milljarða króna í mars 2021 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í mars 2022 var því 8,0 milljörðum hagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 237,4 milljarða króna sem er 86,6 milljarða króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 31,6% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í mars 2022 jókst um 36.1 milljarð króna, eða um 57,9%, frá mars 2021, úr 62,4 milljörðum króna í 98,4 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 24,3 milljarða króna, eða 91,0% samanborið við mars 2021.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 835,6 milljarðar króna og jókst um 200,8 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 31,6% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 54% alls vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili og var verðmæti þeirra 47,3% meira en á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 14,9% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 8,5 milljarða á milli tólf mánaða tímabila, eða um 26,8%, og mælist 5% af heildarútflutningsverðmæti á tólf mánaða tímabili.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 36,6% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 109,9 milljörðum króna í mars 2022 samanborið við 81,8 milljarða í mars 2021 og jókst um 28,1 milljarð króna eða 34,4%. Verðmæti flutningstækja jókst um 11,5 milljarða (137,6%), þar af flugvéla um 7,5 milljarða, verðmæti eldsneytis jókst um 6,7 milljarða króna (142,5%) og verðmæti hrá- og rekstrarvöru jókst um 7,2 milljarða (27,4%).

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.073,0 milljarðar króna og jókst um 287,4 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabili ári fyrr eða 36,6% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á tímabilinu var mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og flutningatækjum.

Meðaltal gengisvísitölu1 á tólf mánaða tímabili var 193,9 og var gengið 5,1% sterkara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 204,4. Gengið styrktist um 3,0% í mars (191,6) samanborið við mars 2021 (197,4).

Meðferð leigusamninga er tengjast utanríkisverslun eru til endurskoðunar og getur sú endurskoðun haft áhrif á bæði vöruskipta- og þjónustujöfnuð.

Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur fyrir mars að ræða og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

1 Heimild: Seðlabanki Íslands - Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.