FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 13. APRÍL 2023

Fluttar voru út vörur fyrir 88,3 milljarða króna fob í mars 2023 og inn fyrir 115,7 milljarða króna cif (109,3 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob/cif-verðmæti voru því óhagstæð um 27,4 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 17,3 milljarða króna í mars 2022 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í mars 2022 var því 10,1 milljarði óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 332,3 milljarða króna sem er 114,7 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 22,8% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í mars 2023 jókst um 0,8 milljarða króna, eða um 1,0%, frá mars 2022, úr 87,5 milljörðum króna í 88,3 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á 12 mánaða tímabili var 1.014,3 milljarðar króna og jókst um 188,1 milljarð króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 22,8% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 56% alls vöruútflutnings og jókst verðmæti þeirra um 27,0% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 35% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra jókst um 17,6% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 29% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 115,7 milljörðum króna í mars 2023 samanborið við 104,8 milljarða í mars 2022 og jókst því um 10,9 milljarða króna eða um 10,4%. Verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 29,7 milljörðum króna sem er aukning um 7,4 milljarða króna (33,4%). Verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 29,6 milljörðum króna og minnkaði um 3,8 milljarða (11,4%) og verðmæti eldsneytis nam 14,8 milljörðum og jókst um 2,5 milljarða króna (20,7%) samanborið við mars 2022.

Verðmæti vöruinnflutnings á 12 mánaða tímabili var 1.346,5 milljörðum króna og jókst um 302,8 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 29,0% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin var mest í eldsneyti, hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingavörum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 192,4 og var gengið 0,8% sterkara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 193,9. Gengið veiktist um 2,6% í mars (196,5) samanborið við mars 2022 (191,6).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir mars og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.