FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. APRÍL 2025

Fluttar voru út vörur fyrir 79,6 milljarða króna fob í mars 2025 og inn fyrir 118,2 milljarða cif (112,2 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 38,6 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 29,1 milljarð króna í mars 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruviðskiptajöfnuðurinn í mars 2025 var því 9,6 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 430,6 milljarða króna sem er 58,3 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 8% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í mars 2025 var 15,2 milljörðum króna meiri (24%) en í mars 2024, fór úr 64,3 milljörðum króna í 79,6 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 987,6 milljarðar króna og jókst um 72,2 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 8% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 55% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 12% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 35% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 1% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 10% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 118,2 milljörðum króna í mars 2025 samanborið við 93,4 milljarða í mars 2024 og jókst því um 24,8 milljarða króna eða um 27%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.418,2 milljarðar króna og jókst um 130,5 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 10% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og á smurolíum og flutningatækjum en á móti kom aukning á innflutningi á flestum öðrum liðum, mest þó á fjárfestingarvörum og hrá- og rekstrarvörum. Mikinn vöxt í fjárfestingavörum má að verulegu leyti rekja til umfangsmikils innflutnings tölvuvara fyrirtækja sem reka gagnaver í landinu.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,3, veiktist um 0,2% (194,0) frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 2,5% sterkara í mars 2025 (190,0) samanborið við mars 2024 (194,9).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir mars og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.