FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. DESEMBER 2021

Fluttar voru út vörur fyrir 72,2 milljarða króna fob í nóvember 2021 og inn fyrir 100,8 milljarða króna cif (93,5 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 28,6 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 15,8 milljarða króna í nóvember 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í nóvember 2021 var því 12,8 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 224 milljarða króna sem er 62,8 milljarða króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 23% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í nóvember 2021 jókst um 21,5 milljarða króna, eða um 42,4%, frá nóvember 2020, úr 50,7 milljörðum króna í 72,2 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 14 milljarða króna, eða 59,4% samanborið við nóvember 2020, og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá desember 2020 til nóvember 2021, var 742,3 milljarðar króna og hækkaði um 138,8 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 23% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 51% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 30,2% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 39% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 10,6% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 9,4 milljarða, eða 34,3%, á sama tímabili og var um 5% af heildarútflutningsverðmæti síðustu tólf mánaða.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 26,4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 100,8 milljörðum króna í nóvember 2021 samanborið við 66,5 milljarða í nóvember í fyrra. Verðmæti fjárfestingavara jókst um 7,2 milljarða króna (44,2%), verðmæti eldsneytis um 4,7 milljarða króna (128,9%) og verðmæti flutningstækja um 9,5 milljarða (156,2%).

Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 966,4 milljarðar króna og jókst um 201,6 milljarða króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 26,4% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili var mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og flutningatækjum.

Meðaltal gengisvísitölu1 síðustu tólf mánuði var 196,5 og var gengið 1,4% sterkara en á fyrra tólf mánaða tímabili þegar meðaltal gengisvísitölu var 199,3. Gengið styrktist um 5,7% í nóvember (197,2) samanborið við nóvember 2020 (209,1). Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur að ræða og niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili
Milljarðar króna á gengi hvors ársDesember 2019 - nóvember 2020Desember 2020 - nóvember 2021Breyting frá fyrra tímabili, %
Útflutningur alls fob603,6 742,3 23,0
Sjávarafurðir263,6 291,5 10,6
Landbúnaðarafurðir þ.m.t. eldisfiskur33,4 46,0 37,8
Iðnaðarvörur291,5 379,6 30,2
Aðrar vörur15,1 25,2 66,9
Innflutningur alls cif764,8 966,4 26,4
Matvörur og drykkjarvörur80,5 89,8 11,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.231,6 278,2 20,2
Eldsneyti og smurolíur54,5 60,5 10,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)169,7 220,0 29,7
Flutningatæki98,7 154,5 56,4
Neysluvörur ót.a.129,2 154,5 19,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)0,6 0,3 -57,5
Vöruskiptajöfnuður-161,2-224,0

1 Heimild: Seðlabanki Íslands - Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281157 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.