FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 05. JANÚAR 2024

Fluttar voru út vörur fyrir 72,1 milljarð króna fob í desember 2023 og inn fyrir 101,6 milljarða cif (96,4 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 29,5 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 12,1 milljarð króna í desember 2022 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í desember 2023 var því 17,4 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 393,7 milljarða króna sem er 92,5 milljörðum króna óhagstæðara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 9% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í desember 2023 var 29,2 milljörðum króna minna (29%) en í desember 2022, fór úr 101,3 milljörðum króna í 72,1 milljarð.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 913,9 milljarðar króna og dróst saman um 90,4 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 9% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 54% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 13% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 4% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings stóð í stað á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 101,6 milljörðum króna í desember 2023 samanborið við 113,4 milljarða í desember 2022 og minnkaði því um 11,8 milljarða króna eða um 10%. Verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 24,8 milljörðum króna og dróst saman um 1,8 milljarða króna (7%), verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 26 milljörðum króna og minnkaði um 6 milljarða (19%) og verðmæti eldsneytis- og smurolíu nam 11,2 milljörðum og dróst saman um 1,5 milljarða króna (12%) samanborið við desember 2022.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.307,6 milljarðar króna og jókst um 2,1 milljarð miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri vöruflokkum er verðmætaaukningin mest í fjárfestingavörum, flutningatækjum og mat- og drykkjarvörum. Á móti kemur samdráttur í verðmæti innflutnings á hrávörum og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 195,2 og var gengið 2,6% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 190,2. Gengið var 1,3% sterkara í desember 2023 (197,1) samanborið við desember 2022 (199,6).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir desember og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá hefur eldra talnaefni verið uppfært.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.