Fluttar voru út vörur fyrir 86,6 milljarða króna fob í desember 2024 og inn fyrir 133,2 milljarða cif (127,5 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 46,7 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 28,1 milljarð króna í desember 2023 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í desember 2024 var því 18,6 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 397,6 milljarða króna sem er 29,3 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings jókst um 2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í desember 2024 var 13,7 milljörðum króna meira (19%) en í desember 2023, fór úr 72,9 milljörðum króna í 86,6 milljarða.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 958,1 milljarður króna og jókst um 20 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 2% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 54% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 3% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 36% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 2% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 133,2 milljörðum króna í desember 2024 samanborið við 101,0 milljarð í desember 2023 og jókst því um 32,3 milljarða króna eða um 32%.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.355,7 milljarðar króna og jókst um 49,3 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á flutningatækjum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom aukning á innflutningi á flestum öðrum liðum, mest þó á fjárfestingarvörum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 195,2 og var gengið óbreytt frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 3,1% sterkara í desember 2024 (191,1) samanborið við desember 2023 (197,1).
Mánaðarlega færir Hagstofan inn upplýsingar frá Póstinum um verðmæti innflutnings með póstsendingum. Hagstofan fékk þær upplýsingar seint á árinu 2024 að sá innflutningur hafi verið ofmetinn allt það ár að meðaltali um tæpan milljarð á mánuði og hefur nú sá innflutningur verið leiðréttur.
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir desember og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í upphafi næsta mánaðar.
Talnefni fyrir vöruviðskipti í nóvember 2024 hefur verið uppfært samhliða þessari útgáfu.