Fluttar voru út vörur fyrir 71,1 milljarð króna fob í nóvember 2025 og inn fyrir 102,5 milljarða cif (96,8 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 31,4 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 37,6 milljarða króna í nóvember 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.
Vöruviðskiptajöfnuðurinn í nóvember 2025 var því 6,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 487,8 milljarða króna sem er 79,8 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings jókst um 1% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í nóvember 2025 var 10,1 milljarði króna minni (12%) en í nóvember 2024, fór úr 81,3 milljörðum króna í 71,1 milljarð.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 932,6 milljarðar króna og jókst um 13,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 1% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 1% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 5% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 7% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 102,5 milljörðum króna í nóvember 2025 samanborið við 118,9 milljarða í nóvember 2024 og dróst saman um 16,4 milljarða eða 14%.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.420,3 milljarðar króna og jókst um 93,5 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 7% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum og flutningatækjum en aukning var á öðrum liðum innflutnings, mest á fjárfestingarvörum sem jukust um 37% eða 122,1 milljarð. Mikinn vöxt í fjárfestingavörum má að verulegu leyti rekja til umfangsmikils innflutnings á tölvubúnaði tengdum gagnaverum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 187,0, styrktist um 4,5% (195,7) frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 2,3% sterkara í nóvember 2025 (188,0) samanborið við nóvember 2024 (192,4).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir nóvember og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.