Fluttar voru út vörur fyrir 73 milljarða króna fob í október 2021 og inn fyrir 85,5 milljarða króna cif (78 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í október, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 12,5 milljarða króna.
Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 9,5 milljarða króna í október 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í október 2021 var því 3 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 210,6 milljarða króna sem er 54,1 milljarði króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings jókst um 19,1% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í október 2021 jókst um 11,6 milljarða króna, eða um 18,8%, frá október 2020, úr 61,4 milljarði króna í 73 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 11,1 milljarð króna, eða 37,8% samanborið við október 2020, og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá nóvember 2020 til október 2021, var 720,9 milljarðar króna og hækkaði um 115,8 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 19,1% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 51% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 24,1% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 40% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 9,7% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 8,6 milljarða, eða 30,4%, á sama tímabili og var um 5% af heildarútflutningsverðmæti síðustu tólf mánaða.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 22,3% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 85,5 milljörðum króna í október 2021 samanborið við 70,9 milljarða í október í fyrra. Verðmæti fjárfestingavara jókst um 5,1 milljarð króna (33,1%), verðmæti eldsneytis jókst um 4,7 milljarða króna (128,3%) og verðmæti flutningstækja um 1,5 milljarða (19,1%).
Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 931,5 milljarðar króna og jókst um 170 milljarða króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 22,3% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili var mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og flutningatækjum.
Meðaltal gengisvísitölu1 síðustu tólf mánuði var 197,6 og var gengið 0,3% veikara en á fyrra tólf mánaða tímabili þegar meðaltal gengisvísitölu var 197,0. Gengið styrktist aftur á móti um 5,9% í október (198,4) samanborið við október 2020 (210,7). Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur að ræða og niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.
Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili | |||
Milljarðar króna á gengi hvors árs | Nóvember 2019 - október 2020 | Nóvember 2020 - október 2021 | Breyting frá fyrra tímabili, % |
Útflutningur alls fob | 605,0 | 720,9 | 19,1 |
Sjávarafurðir | 260,7 | 285,9 | 9,7 |
Landbúnaðarafurðir þ.m.t. eldisfiskur | 34,3 | 45,5 | 32,5 |
Iðnaðarvörur | 294,5 | 365,6 | 24,1 |
Aðrar vörur | 15,5 | 23,9 | 54,2 |
Innflutningur alls cif | 761,5 | 931,5 | 22,3 |
Matvörur og drykkjarvörur | 80,0 | 88,0 | 10,0 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 230,2 | 268,2 | 16,5 |
Eldsneyti og smurolíur | 57,8 | 64,0 | 10,8 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 166,9 | 212,8 | 27,5 |
Flutningatæki | 101,4 | 143,2 | 41,3 |
Neysluvörur ót.a. | 124,6 | 153,2 | 22,9 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 0,6 | 0,3 | -57,7 |
Vöruskiptajöfnuður | -156,5 | -210,6 |
1 Heimild: Seðlabanki Íslands - Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).