Fluttar voru út vörur fyrir 78,5 milljarða króna fob í október 2022 og inn fyrir 131,2 milljarða króna cif (127,7 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í október, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 52,7 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 12,9 milljarða króna í október 2021 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í október 2022 var því 39,8 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 308,7 milljarða króna sem er 103 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings jókst um 34% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í október 2022 jókst um 5,7 milljarða króna, eða um 7,8%, frá október 2021, úr 72,8 milljörðum króna í 78,5 milljarða. Mesta aukingin á milli ára var verðmæti útfluttra sjávarafurða sem hækkaði um 3,2 milljarða króna eða um 12% samanborið við október 2021 en útflutningur iðnaðarvara, sem var 53,6% af heildar útflutningi, jókst um 1,8 milljarða króna eða um 4% samanborið við október 2021.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili frá nóvember 2021 til október 2022 var 971,6 milljarðar króna og jókst um 246 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 34% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 57% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði og jókst verðmæti þeirra um 51% frá fyrra tólf mánaða tímabili. Sjávarafurðir voru 35% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 17% í samanburði við fyrra tólf mánaða tímabil.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 38% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 131,2 milljörðum króna í október 2022 samanborið við 85,7 milljarða í október 2021 og jókst því um 45,4 milljarða króna eða um 53%. Verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) nam 34 milljörðum króna sem er aukning um 13,5 milljarða króna (66%), verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 31,5 milljörðum króna og jókst um 8,1 milljarð (35%) og verðmæti innflutts eldsneytis nam 27,9 milljörðum og jókst um 19,3 milljarða króna (225%) samanborið við október 2021.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili frá október 2021 til október 2022 var 1.280,3 milljarðar króna og jókst um 349 milljarða miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 38% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á tímabilinu var mest í eldsneyti, hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingavörum og flutningstækjum.
Meðaltal gengisvísitölu á tólf mánaða tímabili var 189,8 og var gengið 3,9% sterkara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 197,5. Gengið styrktist um 3,8% í október (189,8) samanborið við október 2021 (197,3).
Meðferð leigusamninga er tengjast utanríkisverslun er til endurskoðunar og mun sú endurskoðun hafa áhrif á bæði vöruskipta- og þjónustujöfnuð.