Fluttar voru út vörur fyrir 83,3 milljarða króna fob í október 2024 og inn fyrir 132,7 milljarða cif (125,3 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í október, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 49,4 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 47,5 milljarða króna í október 2023 á gengi hvors árs fyrir sig.
Vöruskiptajöfnuðurinn í október 2024 var því 1,9 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 378,7 milljarða króna sem er 10,8 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings dróst saman um 1% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í október 2024 var 7 milljörðum króna meiri (9%) en í október 2023, fór úr 76,3 milljörðum króna í 83,3 milljarða.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 946,4 milljarðar króna og dróst saman um 10,9 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 1% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 3% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst einnig saman um 3% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings óbreytt á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 132,7 milljörðum króna í október 2024 samanborið við 123,8 milljarða í október 2023 og jókst því um 8,9 milljarða króna eða um 7%.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.325,1 milljarður króna sem er nánast óbreytt miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr á gengi hvors árs fyrir sig. Mikill samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum en á móti kom aukning á innflutningi á öðrum liðum, mest þó á hrávörum og rekstrarvörum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 195,3 og var gengið 0,4% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 196,1. Gengið var 1,4% veikara í október 2024 (194,7) samanborið við október 2023 (192,0).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir október og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í upphafi næsta mánaðar.