Fluttar voru út vörur fyrir 85,3 milljarða króna fob í október 2025 og inn fyrir 109,5 milljarða cif (104 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í október, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 24,2 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 46,5 milljarða króna í október 2024 á gengi hvors árs fyrir sig.
Vöruviðskiptajöfnuðurinn í október 2025 var því 22,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 482,1 milljarð króna sem er 114,8 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings var nánast óbreytt á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í október 2025 var 1,9 milljörðum króna minni (2%) en í október 2024, fór úr 87,2 milljörðum króna í 85,3 milljarða.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 954,8 milljarðar króna og jókst um fjóra milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða nánast óbreytt í prósentum á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 54% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 2% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 3% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 9% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 109,5 milljörðum króna í október 2025 samanborið við 133,7 milljarða í október 2024 og dróst saman um 24,1 milljarð eða 18%.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.436,9 milljarðar króna og jókst um 118,7 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 9% á gengi hvors árs fyrir sig. Samdráttur var í innflutningi á eldsneyti og smurolíum og flutningatækjum en aukning var á öðrum liðum innflutnings, mest á fjárfestingarvörum sem jukust um 47% eða 152,1 milljarð. Mikinn vöxt í fjárfestingavörum má að verulegu leyti rekja til umfangsmikils innflutnings á tölvubúnaði tengdum gagnaverum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 187,3, styrktist um 4,5% (196,1) frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 6,5% sterkara í október 2025 (182,1) samanborið við október 2024 (194,7).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir október og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.