Fluttar voru út vörur fyrir 94,8 milljarða króna fob í október 2026 og inn fyrir 165,1 milljarð cif (158,9 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í október, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 70,3 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 24 milljarða í október 2025 á gengi hvors árs fyrir sig.
Vöruskiptajöfnuðurinn í október 2026 er því 46,3 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 513,6 milljarðar króna sem er 17,1 milljarði óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti vöruútflutnings í október jókst um 31,7 milljarð á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í október 2026 var 9,4 milljörðum króna meiri (11%) en í október 2025, fór úr 85,3 milljörðum króna í 94,8 milljarða, aðallega vegna aukningar í útflutningi á iðnaðarvörum, aðallega áli, og sjávarafurðum.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 975 milljarðar króna og jókst um 31,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða 3% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 51% alls vöruútflutnings, nær óbreytt borið saman við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 5% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 3% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 165,1 milljarði króna í október 2026 samanborið við 109,3 milljarða í október 2025 og jókst því um 55,8 milljarða króna eða um 51%. Aukning skýrist einkum af innflutningi á fjárfestingavörum og eldsneyti og smurolíum.
Fjárfestingarvörur voru um 46% af heildarverðmæti vöruinnflutnings í október 2026. Áætla má að um þriðjungur af heildar innflutningi í október tengist innflutningi á tölvubúnaði fyrir starfsemi gagnavera hér á landi.
Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.488,6 milljarðar króna og jókst um 48,8 milljarða, miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 3% á gengi hvors árs fyrir sig. Mest var aukning í innflutningi á eldsneyti og smurolíum, fjárfestingavörum og flutningatækjum. Samdráttur var mestur í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum.
Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 185,1 og var gengið 1,2% sterkara frá tólf mánaða tímabili ári fyrr. Gengið var 1,8% sterkara í október 2026 (178,8) samanborið við október 2025 (182,1).
Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir október og gætu niðurstöður breyst.