FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 10. OKTÓBER 2022

Fluttar voru út vörur fyrir 92,1 milljarð króna fob í september 2022 og inn fyrir 135,5 milljarða króna cif (124,3 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 43,4 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 17,7 milljarða króna í september 2021 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í september 2022 var því 25,7 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir rúmu ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 269,0 milljarða króna sem er 67,7 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 35,1% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í september 2022 jókst um 23,8 milljarða króna, eða um 34,9%, frá september 2021, úr 68,2 milljörðum króna í 92,1 milljarð. Mest var auking í verðmæti útfluttra iðnaðarvara, 13,0 milljarðar króna eða 34,9% samanborið við september 2021.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili frá október 2021 til september 2022 var 965,9 milljarðar króna og jókst um 250,8 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 35,1% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 57,1% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði og jókst verðmæti þeirra um 55,5% frá fyrra tólf mánaða tímabili. Sjávarafurðir voru 34,9% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 15,5% í samanburði við fyrra tólf mánaða tímabil.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 34,8% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 135,5 milljörðum króna í september 2022 samanborið við 85,9 milljarða í september 2021 og jókst því um 49,6 milljarða króna eða um 57,7%. Verðmæti hrá- og rekstrarvöru nam 35,0 milljörðum króna og jókst um 8,2 milljarða (30,5%), verðmæti fjárfestingarvara (utan flutningstækja) var 26,9 milljarðar króna sem er aukning um 6,5 milljarða króna (32,1%) og verðmæti innflutts eldsneytis nam 31,5 milljörðum og jókst um 24,0 milljarða króna (319%) samanborið við september 2021.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili frá október 2021 til september 2022 var 1.234,9 milljarðar króna og jókst um 318,5 milljarða miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 34,8% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á tímabilinu var mest í eldsneyti, hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingavörum.

Meðaltal gengisvísitölu á tólf mánaða tímabili var 190,5 og var gengið 4,1% sterkara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 198,6. Gengið styrktist um 4,3% í september (188,8) samanborið við september 2021 (197,2).

Meðferð leigusamninga er tengjast utanríkisverslun er til endurskoðunar og mun sú endurskoðun hafa áhrif á bæði vöruskipta- og þjónustujöfnuð.

Í þessari frétt er um bráðabirgðatölur fyrir september að ræða og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar. Þá verður talnaefni uppfært.

Í frétt fyrir ágúst kom í ljós villa í tölum um innflutning. Í fréttinni var innflutningur ofmetinn um þrjá milljarða og hefur það verið leiðrétt. Töflur á vef voru uppfærðar um leið og villan kom í ljós.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.