FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 09. OKTÓBER 2024

Fluttar voru út vörur fyrir 87,2 milljarða króna fob í september 2024 og inn fyrir 114,6 milljarða cif (108,3 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 27,5 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 13,9 milljarða króna í september 2023 á gengi hvors árs fyrir sig.

Vöruskiptajöfnuðurinn í september 2024 var því 13,6 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 377,7 milljarða króna sem er 2,4 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í september 2024 var 3 milljörðum króna minni (3%) en í september 2023, fór úr 90,1 milljarði króna í 87,2 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 940,3 milljarðar króna og dróst saman um 21,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 2% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 4% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 37% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst einnig saman um 4% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 1% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 114,6 milljörðum króna í september 2024 samanborið við 104 milljarða í september 2023 og jókst því um 10,7 milljarða króna eða um 10%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.318 milljarðar króna og minnkaði um 19,3 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 1% á gengi hvors árs fyrir sig. Mikill samdráttur var í innflutningi á flutningatækjum og eldsneyti og smurolíum en á móti kom aukning á innflutningi á öðrum liðum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 195,9 og var gengið 0,4% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 195,1. Gengið var 4,7% veikara í september 2024 (198,0) samanborið við september 2023 (189,1).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir september og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í upphafi næsta mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.