FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. FEBRÚAR 2020

Verðmæti vöruútflutnings (fob) nam 51,8 milljörðum króna samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir janúar 2020 og fob verðmæti vöruinnflutnings 49,4 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,5 milljarða króna. Í janúar 2019 voru vöruviðskiptin hagstæð um 24,1 milljarði króna á gengi hvors árs. Rétt er að geta þess að útflutningur á skipum og flugvélum var mikill í janúar 2019, en án skipa og flugvéla nam vöruskiptajöfnuðurinn í janúar 2019 4,7 milljarðar króna.

Verðmæti vöruútflutnings var 24,7 milljörðum króna lægra í janúar 2020 en í janúar 2019, eða 32,3% á gengi hvors árs. Minni viðskipti voru í nær öllum flokkum nema í flokki með sjávarafurðir.

Verðmæti vöruinnflutnings í janúar 2020 var 3,0 milljörðum króna lægra en í janúar 2019, eða 5,8% á gengi hvors árs. Lækkun var í flestum flokkum en aukning var í viðskiptum með hrá- og rekstarvörur og eldsneyti og flutningstæki.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Útflutningur, innflutningur og vöruviðskiptajöfnuður 2015–2020, fob-verð í milljörðum króna

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281157 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.