FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. MAÍ 2020

Fluttar voru út vörur fyrir 47,3 milljarða króna í apríl 2020 og inn fyrir 47,6 milljarða króna fob (51,5 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 0,4 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 15,3 milljarða króna í apríl 2019 á gengi hvors árs fyrir sig.1 Vöruviðskiptajöfnuðurinn í apríl 2020 var því 14,9 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Viðskipti með skip og flugvélar höfðu óveruleg áhrif á vöruviðskiptajöfnuð.

Verðmæti útflutnings dregst saman
Verðmæti vöruútflutnings var 27,9 milljörðum króna lægra á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2020 en á sama tímabili fyrir ári síðan eða 12,5% á gengi hvors árs fyrir sig.1 Munar þar mestu um viðskipti með skip og flugvélar í janúar 2019. Iðnaðarvörur voru 50,3% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 3,6% lægra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 41,3% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 4,0% lægra en á sama tíma í fyrra.

Verðmæti vöruinnflutnings 23,6 milljörðum lægra
Verðmæti vöruinnflutnings var 23,6 milljörðum króna lægra á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2020 en á sama tímabili fyrir ári eða 9,8% á gengi hvors árs fyrir sig.1 Innflutningur dróst saman í nær öllum flokkum nema flutningstækjum og neysluvörum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings janúar-apríl 2019 og 2020
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
ári á gengi hvors árs,
% janúar-apríl
Apríl Janúar-apríl
20192020 2019 2020
Útflutningur alls fob50.232,247.255,2224.199,1196.282,7-12,5
Sjávarafurðir21.353,117.757,684.364,280.969,8-4,0
Landbúnaðarvörur2.549,72.092,810.359,111.657,112,5
Iðnaðarvörur25.283,526.609,4102.500,298.784,4-3,6
Aðrar vörur1.045,9795,426.975,74.871,4-81,9
Innflutningur alls fob65.567,847.644,2240.321,7216.731,5-9,8
Matvörur og drykkjarvörur6.637,45.869,122.502,721.664,4-3,7
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.24.104,715.907,875.892,460.849,8-19,8
Eldsneyti og smurolíur7.099,11.431,925.740,819.016,5-26,1
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)12.608,312.152,757.914,148.155,7-16,8
Flutningatæki7.076,84.157,824.991,932.659,830,7
Neysluvörur ót.a.8.025,28.098,833.155,934.308,83,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)16,226,1123,976,6-38,2
Vöruviðskiptajöfnuður-15.335,65-388,96-16.122,56-20.448,82 

1) Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.