FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MARS 2020

Fluttar voru út vörur fyrir 47,9 milljarða króna í febrúar 2020 og inn fyrir 49,7 milljarða króna fob (53,4 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 1,8 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 15,6 milljarða króna í febrúar 2019 á gengi hvors árs fyrir sig.1 Vöruviðskiptajöfnuðurinn í febrúar 2020 var því 13,8 milljörðum króna minni en á sama tíma fyrir ári. Hverfandi viðskipti voru með skip og flugvélar í mánuðinum.

Aukið verðmæti útfluttra sjávarafurða
Verðmæti vöruútflutnings var 21,6 milljarða króna minni á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2020 en á sama tímabili fyrir ári síðan, eða 17,8% á gengi hvors árs fyrir sig.1 Munar þar mest um viðskipti með skip flugvélar í janúar 2019. Iðnaðarvörur voru tæpur helmingur alls útflutnings, eða 46,2%, og var verðmæti þeirra 12,7% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,7% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 7,8% meira en á sama tíma árið áður. Mest var aukning á frystum heilum fiski og frystum flökum. Á móti kom minna verðmæti í ferskum fiski á milli ára.

Vöruinnflutningur 12,5 milljörðum minni
Verðmæti vöruinnflutnings var 12,5 milljörðum króna minni á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2020 en á sama tímabili fyrir ári, eða 11,1% á gengi hvors árs fyrir sig.1 Innflutningur dróst mest saman í hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingarvörum en jókst á flutningstækjum, eldsneyti og smurolíum og neysluvörum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings janúar-febrúar 2019 og 2020
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
ári á gengi hvors árs,
% janúar-febrúar
Febrúar Janúar-febrúar
20192020 2019 2020
Útflutningur alls fob44.705,547.872,4121.263,499.704,4-17,8
Sjávarafurðir18.991,621.572,341.302,744.543,57,8
Landbúnaðarvörur2.286,03.424,45.340,06.317,918,3
Iðnaðarvörur22.412,421.172,852.741,546.031,9-12,7
Aðrar vörur1.015,51.702,821.879,12.811,2-87,2
Innflutningur alls fob60.285,349.676,8112.704,8100.249,7-11,1
Matvörur og drykkjarvörur4.665,65.113,210.757,89.650,0-10,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.20.466,914.535,334.399,124.498,6-28,8
Eldsneyti og smurolíur4.995,13.432,010.711,410.940,52,1
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)15.654,811.279,430.099,022.912,8-23,9
Flutningatæki6.244,86.726,010.867,015.844,045,8
Neysluvörur ót.a.8.236,08.569,315.801,816.369,63,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)22,121,668,734,2-50,2
Vöruviðskiptajöfnuður-15.579,8-1.804,48.558,6-545,3 

1 Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.