FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. ÁGÚST 2020

Fluttar voru út vörur fyrir 46,8 milljarða króna í júlí 2020 og inn fyrir 58,4 milljarða króna fob (62,6 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 11,6 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um tæpan 20,1 milljarð króna í júlí 2019 á gengi hvors árs fyrir sig.1 Vöruviðskiptajöfnuðurinn í júlí 2020 var því 8,4 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Viðskipti með skip og flugvélar höfðu óveruleg áhrif á vöruviðskiptajöfnuðinn í júlí 2020 en vöruskiptajöfnuður án skipa og flugvéla var óhagstæður um 18,3 milljarða króna í júlí 2019.

Verðmæti útflutnings dregst saman
Verðmæti vöruútflutnings var 42,1 milljarði króna lægra á fyrstu sjö mánuðum ársins 2020 en á sama tímabili fyrir ári síðan eða 11,0% á gengi hvors árs fyrir sig.1 Munar þar mestu um viðskipti með skip og flugvélar í janúar 2019. Iðnaðarvörur voru 49,6% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 7,1% lægra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,7% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra var 3,5% lægra en á sama tíma í fyrra.

Verðmæti vöruinnflutnings 66,6 milljörðum lægra
Verðmæti vöruinnflutnings var 66,6 milljörðum króna lægra á fyrstu sjö mánuðum ársins 2020 en á sama tímabili fyrir ári eða 14,7% á gengi hvors árs fyrir sig.1 Innflutningur dróst saman í nær öllum flokkum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings janúar-júlí 2019 og 2020
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
ári á gengi hvors árs,
% janúar-júlí
Júlí Janúar-júlí
20192020 2019 2020
Útflutningur alls fob51.508,846.768,1384.626,8342.498,7-11,0
Sjávarafurðir23.415,818.970,4151.394,8146.107,5-3,5
Landbúnaðarvörur1.870,91.681,416.268,917.569,08,0
Iðnaðarvörur24.879,624.884,7182.851,5169.826,0-7,1
Aðrar vörur1.342,61.231,634.111,68.996,2-73,6
Innflutningur alls fob71.560,558.387,3452.606,2386.006,8-14,7
Matvörur og drykkjarvörur8.212,66.540,843.077,239.109,6-9,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.19.295,117.530,3133.078,6113.530,3-14,7
Eldsneyti og smurolíur8.885,62.319,452.606,227.088,1-48,5
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)16.950,013.346,9103.243,288.414,8-14,4
Flutningatæki8.991,38.385,961.854,255.835,7-9,7
Neysluvörur ót.a.9.107,39.966,658.455,561.591,75,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)118,6297,4291,3436,849,9
Vöruviðskiptajöfnuður-20.051,69-11.619,18-67.979,45-43.508,12 

Endurskoðun á gögnum utanríkisverslunar er væntanleg
Þjóðhagsreikningar eru að taka upp nýtt verklag varðandi endurskoðun á gögnum eins og kom fram í frétt frá 28. febrúar 2020. Þar sem gögn utanríkisverslunar eru nýtt í útreikning þjóðhagsreikninga er samræmi æskilegt og því mun sama verklag verða tekið upp við útreikning vöru- og þjónustuviðskipta. Auk hefðbundinnar útgáfu bráðabirgðatalna og endanlegra talna verður verklag endurskoðunar vöruviðskipta eftirfarandi: Fyrir útgáfu vöruviðskipta fyrir janúar-október 2020, sem fyrirhuguð er þann 30. nóvember nk., verða tímaraðir endurskoðaðar eftir þörfum. Verður þá leitast við að innleiða breytingar vegna nýrri eða betri gagna, nýrri eða endurbættra aðferða við mat á gögnum og endurskoðun staðla og flokkunarkerfa. Næsta meiriháttar endurskoðun er fyrirhuguð árið 2024 og síðan á fimm ára fresti eftir það.

1) Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum. Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrri mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir en geta breyst í framtíðar endurskoðunum gagna.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.