Fluttar voru út vörur fyrir 61,2 milljarða króna fob í maí 2021 og inn fyrir 76,8 milljarða króna cif (71,3 milljarða króna fob). Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 15,6 milljarða króna. Þessar tölur eru í samræmi við bráðabirgðatölur sem voru birtar 7. júní.
Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 4,2 milljarða króna í maí 2020 og er vöruskiptajöfnuðurinn því 11,4 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 166,6 milljarða króna sem er 12,6 milljarða króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.
Verðmæti útflutnings jókst um 8,7% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í maí 2021 jókst um 7,9 milljarða króna, eða um 14,9%, frá maí 2020, úr 53,2 milljörðum í 61,2 milljarða. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 4,3 milljarða, eða um 18%, og munar þar mestu um aukið verðmæti loðnuhrogna. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 2,1 milljarð eða 8,1% samanborið við maí 2020 og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls og útflutning á lækningatækjum.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júní 2020 til maí 2021, var 656,6 milljarðar króna og hækkaði um 52,5 milljarða miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 8,7% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 47,3% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 4% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 43,6% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 13% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 7,7 milljarða, eða 30,2%, á sama tímabili eða um 5,1% af heildarútflutningi.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 5,1% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 76,8 milljörðum króna í maí 2021 samanborið við 57,4 milljarða í maí 2020. Verðmæti hrá- og rekstrarvara jókst um 3,7 milljarða króna (20%), verðmæti matvöru og drykkjarvöru jókst um tæpa 2,8 milljarða frá því í maí í fyrra (50,8%), neysluvörur um aðra 3,6 milljarða (41,2%) og flutningstæki um 6 milljarða króna (85,4%). Aðrir liðir tóku minni breytingum.
Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 823,1 milljarður króna og jókst um 39,9 milljarða miðað við tólf mánuði þar á undan eða 5,1% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili er mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og neysluvörum en á móti er samdráttur í flutningatækjum og eldsneyti.
Hafa má í huga að gengisvísitala hækkaði um 8,4% á þessu tólf mánaða tímabili en gengið styrktist á móti um 5,5% á milli maí 2020 og 2021.
Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili | |||
Milljarðar króna á gengi hvors árs | Júní 2019-maí 2020 | Júní 2020-maí 2021 | Breyting, % |
Útflutningur alls fob | 604,1 | 656,6 | 8,7 |
Sjávarafurðir | 253,2 | 286,2 | 13,0 |
Landbúnaðarvörur (þ.m.t. eldisfiskur) | 31,5 | 41,3 | 31,1 |
Iðnaðarvörur | 298,6 | 310,5 | 4,0 |
Aðrar vörur | 20,7 | 18,6 | -10,2 |
Innflutningur alls cif | 783,3 | 823,1 | 5,1 |
Matvörur og drykkjarvörur | 79,3 | 85,4 | 7,7 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 228,2 | 252,3 | 10,6 |
Eldsneyti og smurolíur | 86,1 | 45,1 | -47,7 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 165,0 | 189,7 | 15,0 |
Flutningatæki | 110,4 | 104,5 | -5,4 |
Neysluvörur ót.a. | 113,8 | 145,5 | 28,0 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 0,4 | 0,6 | 29,9 |
Vöruskiptajöfnuður | -179,2 | -166,6 |
1 Heimild: Seðlabanki Íslands - Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).