FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. APRÍL 2021

Fluttar voru út vörur fyrir 61,5 milljarða króna í mars 2021 og inn fyrir 82,5 milljarða cif (76,4 milljarða króna fob). Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 21 milljarð króna. Þessar tölur eru í fullu samræmi við bráðbirgðatölur sem voru birtar 12. apríl.

Í mars 2020 voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 19,4 milljarða króna. Vöruviðskiptajöfnuðurinn í mars 2021 var því 1,5 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruviðskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 151,2 milljarða króna sem er 43,3 milljörðum hagstæðari jöfnuður, eða 22,3%, en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 2,8% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í mars 2021 jókst um 5 milljarða króna, eða um 8,8%, frá mars 2020, úr 56,5 milljörðum króna í 61,5 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 483,7 milljónir króna, eða um 1,8% samanborið við mars 2020. Þar af jókst útflutningur á lækningavörum og lyfjum um 66,6% sem er 4% af öllum iðnaðarvörum eða 1,8% af heildinni. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 1,7 milljarða (6,7%) og landbúnaðar jókst um 82,9% á milli ára.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2020 til mars 2021, var 634,6 milljarðar króna og hækkaði um 17,2 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 2,8% á gengi hvors árs.. Iðnaðarvörur voru 48,2% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 1,1% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 42,9% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 4,3% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 19,9% á sama tímabili.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 3,2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 82,5 milljörðum króna cif í mars 2021 samanborið við 76 milljarða í mars 2020. Verðmæti neysluvara jókst um 42,5% í mars 2021 frá mars 2020. Verðmæti flutningstækja minnkaði hins vegar um 36,6% samanborið við mars 2020.

Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 785,8 milljarðar króna og lækkaði um 26,1 milljarð miðað við tólf mánuði þar á undan eða 3,2% á gengi hvors árs fyrir sig. Mestu munaði um samdrátt í innflutningi á eldsneyti.

Vinsamlegast athugið að sundurliðun eldnseytis hefur verið breytt í töflunni verðmæti út- og innflutnings eftir mánðum á vef Hagstofunnar

Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili
Milljarðar króna á gengi hvors ársApríl 2019 - mars 2020Apríl 2020 - mars 2021Breyting, %
Útflutningur alls fob617,3634,62,8
Sjávarafurðir261,1272,34,3
Landbúnaðarvörur (þ.m.t. eldisfiskur)32,639,421,0
Iðnaðarvörur302,5305,91,1
Aðrar vörur21,217,0-19,9
Innflutningur alls cif811,9785,8-3,2
Matvörur og drykkjarvörur80,683,23,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.233,7244,24,5
Eldsneyti og smurolíur97,343,9-54,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)168,1184,29,5
Flutningatæki117,989,6-24,0
Neysluvörur ót.a.113,8140,123,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)0,40,647,5
Vöruviðskiptajöfnuður-194,6-151,2 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281157 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.