FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. OKTÓBER 2021

Fluttar voru út vörur fyrir 67,6 milljarða króna fob í september 2021 og inn fyrir 85,9 milljarða króna cif (79,9 milljarða króna fob). Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 18,4 milljarða króna.

Til samanburðar voru vöruviðskiptin reiknuð á fob/cif-verðmæti óhagstæð um 11,6 milljarða króna í september 2020 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í september 2021 var því 6,8 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða var óhagstæður um 207,6 milljarða króna sem er 55,4 milljörðum króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings jókst um 16,5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í september 2021 jókst um 6,6 milljarða króna, eða um 10,8%, frá september 2020, úr 61 milljarði króna í 67,5 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 11,7 milljarða króna, eða 46,2% samanborið við september 2020, og munar þar mest um aukið útflutningsverðmæti áls. Útflutningsverðmæti sjávarafurða dróst saman um fimm milljarða, eða um 17%, og munar þar mestu um lækkun á verðmæti í ferskum fiski og frystum heilum fiski.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá október 2020 til september 2021, var 709,3 milljarðar króna og hækkaði um 100,6 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 16,5% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 50% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 21% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 40,4% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 7,8% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 7,2 milljarða, eða 25,2%, á sama tímabili og var um 5,1% af heildarútflutningsverðmæti síðustu tólf mánaða.

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 20,5% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 85,9 milljörðum króna í september 2021 samanborið við 72,6 milljarða í september í fyrra. Verðmæti fjárfestingavara jókst um tæpa sex milljarða króna (41,4%), verðmæti eldsneytis jókst um 2,8 milljarða króna (59,9%) og verðmæti hrá- og rekstrarvara jókst um 2,6 milljarða (10,9 %).

Verðmæti vöruinnflutnings síðustu tólf mánuði var 916,9 milljarðar króna og jókst um 156 milljarða króna miðað við tólf mánuði þar á undan eða 20,5% á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin á þessu tólf mánaða tímabili var mest í hrá- og rekstrarvörum, fjárfestingarvörum og flutningatækjum.

Meðaltal gengisvísitölu1 síðustu tólf mánuði var 198,6 og var gengið 2,1% veikara en á fyrra tólf mánaða tímabili þegar meðaltal gengisvísitölu var 194,5. Gengið styrktist aftur á móti um 5,9% í september (197,2) samanborið við september 2020 (209,5).

Verðmæti út- og innflutnings á tólf mánaða tímabili
Milljarðar króna á gengi hvors ársOktóber 2019-september 2020Október 2020-september 2021Breyting, %
Útflutningur alls fob608,7709,316,5
Sjávarafurðir265,4286,27,8
Landbúnaðarvörur (þ.m.t. eldisfiskur)34,544,328,3
Iðnaðarvörur293,1354,521,0
Aðrar vörur15,724,354,4
Innflutningur alls cif760,9916,920,5
Matvörur og drykkjarvörur80,488,19,6
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.225,6267,418,5
Eldsneyti og smurolíur62,259,3-4,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)165,8207,725,3
Flutningatæki103,8141,736,6
Neysluvörur ót.a.122,6152,424,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)0,60,3-58,4
Vöruskiptajöfnuður-152,2-207,6 

1 Heimild: Seðlabanki Íslands - Gengisvísitala (Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281157 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.