FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. SEPTEMBER 2017

Vöruviðskiptajöfnuður
Í ágúst voru fluttar út vörur fyrir 45,9 milljarða króna og inn fyrir 52 milljarða króna fob (55,5 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um rúma 6 milljarða króna og er sá halli sá minnsti síðan afgangur var á mánaðarlegum vöruviðskiptum í október á síðasta ári. Í ágúst 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 12,9 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Janúar-ágúst 2017 voru fluttar út vörur fyrir 326,5 milljarða króna en inn fyrir 440,9 milljarða króna fob (470,1 milljarð króna cif). Því var halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam tæpum 114,5 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 86,9 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn janúar-ágúst 2017 var því 27,6 milljörðum króna hærri en á sama tíma árið áður.                                                                                                                               

Útflutningur
Janúar-ágúst 2017 var verðmæti vöruútflutnings 32,9 milljörðum króna lægra, eða 9,2% á gengi hvors árs,1 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 55,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 0,2% hærra en á sama tíma árið áður. Útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman en útflutningur á áli jókst. Sjávarafurðir voru 37,9% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 21% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á ferskum fiski og frystum flökum.

Innflutningur
Janúar-ágúst 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 5,3 milljörðum króna lægra, eða 1,2% á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Innflutningur á hrá- og rekstrarvörum, skipum og fólksbílum jókst en á móti dróst innflutningur á flugvélum saman.

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–ágúst 2016 og 2017
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Ágúst Jan.–ágúst ári á gengi hvors árs,
  2016 2017 2016 2017  % jan.–ágúst
           
Útflutningur alls fob 40.617,4 45.937,9 359.424,5 326.481,4 -9,2
Sjávarafurðir 18.056,9 18.240,4 156.832,9 123.855,4 -21,0
Landbúnaðarvörur 1.573,4 1.898,9 10.256,5 12.817,9 25,0
Iðnaðarvörur 19.316,4 25.093,8 180.494,7 180.904,9 0,2
Aðrar vörur 1.670,5 704,7 11.840,4 8.903,2 -24,8
           
Innflutningur alls fob 53.547,7 51.955,1 446.285,0 440.941,2 -1,2
Matvörur og drykkjarvörur 5.282,8 5.107,0 38.664,8 37.533,1 -2,9
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 12.971,5 14.726,1 113.961,1 118.425,9 3,9
Eldsneyti og smurolíur 8.701,5 5.379,3 46.365,3 46.093,0 -0,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 12.284,8 10.685,3 97.193,4 94.810,3 -2,5
Flutningatæki 6.857,8 8.075,8 91.227,7 87.907,1 -3,6
Neysluvörur ót.a. 7.435,1 7.937,9 58.529,2 55.966,3 -4,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 14,4 43,7 343,6 205,5 -40,2
           
Vöruskiptajöfnuður -12.930,4 -6.017,2 -86.860,5 -114.459,8 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.