FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. JANÚAR 2017

Vöruviðskiptajöfnuður
Í desember voru fluttar út vörur fyrir 41,4 milljarða króna og inn fyrir 49,5 milljarða króna fob (52,8 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 8,1 milljarð króna. Í desember 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 9,3 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Árið 2016 voru fluttar út vörur fyrir 537,3 milljarða króna en inn fyrir 645,7 milljarða króna fob (687,8 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 108,4 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Árið 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 30,6 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 77,8 milljörðum króna lakari árið 2016 en árið áður.

Útflutningur
Árið 2016 var verðmæti vöruútflutnings 88,7 milljörðum króna lægra, eða 14,2%, á gengi hvors árs,¹ en árið 2015. Iðnaðarvörur voru 50,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 18,3% lægra en árið 2015, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 12,4% lægra en árið 2015.

Innflutningur
Árið 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 10,9 milljörðum króna lægra, eða 1,7%, á gengi hvors árs,¹ en árið 2015. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á flutningatækjum.

Lokatölur fyrir árið 2016 verða birtar 24. maí 2017.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–desember 2015 og 2016
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Desember Jan.–desember ári á gengi hvors árs,
  2015 2016 2015 2016  % jan.–desember
           
Útflutningur alls fob 48.080,8 41.422,2 626.091,9 537.342,1 -14,2
Sjávarafurðir 19.483,8 14.977,2 264.665,4 231.847,2 -12,4
Landbúnaðarvörur 1.321,2 1.710,9 13.267,6 17.125,9 29,1
Iðnaðarvörur 24.195,0 23.580,6 331.060,2 270.416,5 -18,3
Aðrar vörur 3.080,7 1.153,5 17.098,7 17.952,4 5,0
           
Innflutningur alls fob 57.347,5 49.498,2 656.661,9 645.721,4 -1,7
Matvörur og drykkjarvörur 4.474,0 4.062,7 65.036,8 57.421,3 -11,7
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 12.280,0 13.854,2 184.882,8 168.490,4 -8,9
Eldsneyti og smurolíur 4.229,6 5.525,2 83.123,8 69.867,6 -15,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 12.006,2 10.128,5 137.382,1 140.637,1 2,4
Flutningatæki 16.994,7 8.444,5 103.893,4 120.139,6 15,6
Neysluvörur ót.a. 7.332,0 7.434,2 81.398,8 88.631,9 8,9
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 31,1 48,9 944,2 533,4 -43,5
           
Vöruskiptajöfnuður -9.266,8 -8.076,1 -30.570,1 -108.379,3 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.