FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. JÚLÍ 2020

Verðmæti vöruútflutnings (fob) nam 46,8 milljörðum króna í júní 2020 samkvæmt bráðabirgðatölum og verðmæti vöruinnflutnings (fob) 59,3 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 12,5 milljarða króna. Í júní 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 29 milljarða króna á gengi hvors árs.

Verðmæti vöruútflutnings var 1,1 milljarði króna hærra í júní 2020 en í júní 2019 eða sem nemur 2,4% á gengi hvors árs. Í fjárhæðum var mest aukning í útflutningi á sjávarafurðum.

Verðmæti vöruinnflutnings í júní 2020 var 15,4 milljörðum lægra en í júní 2019 eða 20,6% á gengi hvors árs. Lækkunina má aðallega rekja til minni innflutnings á flutningatækjum annars vegar og eldsneyti og smurolíum hins vegar.

Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.